Jæja.. ég held að ég gefi mér leyfi til að blogga fyrir hönd
hópsins um þessa snilldarferð.. En við stelpurnar (Lóa, ég, Andrea,
María, Kristín og Arnrún) fórum allar saman til akureyrar að djamma
um helgina... Ég sóttir stelpurnar á föstudaginn og við náðum að
komast samkvæmt mínu plani útur bænum klukkan hálffjögur og má með
sanni segja aðég hafi verið meira en sátt með það...
ég gaf
kristínu sætustu kort og muffins með einu kerti í og við sungum
afmælissönginn fyrir hana í bílnum en hún áttti afmæli á
fimmtudeginum
til hamingju með elsku dúllan mín...:* en allavega,
það var brjálað stuð á leiðinni og það var ýmist sungið og talað á
leiðinni norður.. sem var frekar næs... við skiptumst á að keyra og
ég var góð á því og byrjaði að drekka á leiðinni
komum til
akureyrar svona um 9 leytið og gripum með okkur nings og fórum uppí
íbúð að drekka... ég mundi að segja að þetta kvöld hafi verið
snilldin ein og við kíktum í smástund niðrí bæ en ákváðum svo að
fara heim að muncha.. sem var gott... skelltum okkur síðan í sund í
svona 3 tíma á laugardeginum en veðrið var frábært og
glampandi sól og læti, sem okkur þykir alls ekki leiðinlegt...
eftir hart tan fórum við heim og horfðum á Family guy og lögðum
okkur til að safna orku fyrir kvöld nr.2 ...Borðuðum á Greifanum
sem var sjúklega næs og fórum svo heim að drekka aftur... hah
laugardagskvöldið var klárlega jafnmikil snilld og fyrrakvöldið og
enn og aftur vorum við 6 saman að skemmta hvor annarri
konunglega... kíktum á sjallan svo og komum heim uppúr 6
tekið á
því seinna kvöldið.. vöknuðum síðan svona um 1 í dag og ´tókum til
og fórum fljótlega heim... en ég ætla að koma með nokkur skemmtileg
atriði sem mér fannst einkenna ferðina:
-Sveittir gangaverðir -lagið höstler en við bjuggum til nýjan og
endurbættan texta 
-Orðin fokka,sukka og likka
-sætir pólskí gaurar sem vildu okkur feigar
-við duglegar að rífa kjaft við alla
-andrea og Kristín urðu ástfangnar af ljósastaur?
-Lóa gerðist mótorhjólakappi í svona 5 mín
-Lóa gerði ýmislegt skemmtilegt 
-fórum í aldrei hef ég aldrei drykkjuleikinnn og vitum núna allt
dirty stuffið um allar
hahaha nefni engar spurningar
-Lóa fann uppá drykkjuleik sem er einstaklega
skemmtilegur(áhugasamir hafi samband)
-Hlógum fáránlega mikið og skemmtum okkur konunglega
Man ekki fleiri atriði í bili en endilega bætið við stelpur og
commentið
ég er gjörsamlega búin á því og þar sem ég er að fara
að byrja í boot campinu á morgun þá ætla ég að drífa mig að horfa á
smá desperate housewifes 3 en Írena besta lét mig hafa 3 seríu á
fimmtudaginn og líka Grey's anatomy og ég mun mjög líklega eyða
restinni af vikunni í að hanga og horfa á það.. stuð hérna megin ég
veit það
En takk elsku bestu stelpur fyrir topp 5 skemmtilegustu ferð í
lífinu!!!! þetta var frábært í alla staði.. og svo er það bara
matarboð í vikunni svo afmælið hjá Kristinu næstu helgi ... næsheit
í gangi hérna 
herna er smá brot af myndum sem eg ætla að skella inn á
morgun

við allar hressar saman

ég og andrea sætust

haha snillingar hérna 
Kveð að sinni með þökk fyrir allt
Berta daaawwwgg